
Hér kemur fyrri hlut þess efnis sem ég set undir náttúruverkefni. Hér fékk ég að láni dóttur vina minna þar sem mínar dætur eru báðar um tvítugt og ég í þeirri stöðu í skólanum að ég kenni sára lítið. Ég og þessi unga snót skemmtum okkur við að safna greinum sem ég hafði séð fyrir mér að við gætum flétta saman á einhvern hátt. Þegar við höfðum safnað saman ýmsu, komst ég að því að hún hafði fengið hugmynd af myndverki og gaf ég henni því lausan tauminn. Útkoman var góð, einnig útkoman með blönduðu tækninni ( þar sem hún setti ýmislegt dót inní ). Ég var ekki að gera athugasemd við það heldur leyfði henni að skapa í friði.
|



